Ég er alveg til í að borga einhvern skatt vegna þess að ég nota nagladekk. Eina skilyrðið sem ég set er að gjaldið þarf að vera tengt þyngd bílsins. Annað væri ekki vitrænt. Reyndar myndi ég líka vilja fá afslátt þar sem bíllinn er svo lítið notaður en það væri erfiðara í framkvæmd.