Eftir á að hyggja held ég að það hafi verið mistök hjá fólkinu sem skipulagði indefense að afneita hryðjuverkum. Mikið hyggilegra hefði verið að afneita bankamönnunum. Ég hefði stoltur sett mynd af mér órökuðum með húfuhár í Rebels Republica de Cork bolnum mínum með skilti sem á stæði “Do I look like a fucking banker mr. Brown?” inn á slíka síðu. Þetta er nefnilega kjarni málsins. Við erum engir fokkings bankamenn, við tókum enga peninga og við eigum enga peninga. Ég vil endilega senda sem mest af þessu slefandi bankapakki út til Evrópu þar sem það getur tekið ábyrgð á eigin verkum og slíkt snýst ekki um að segjast taka ábyrgð heldur að taka á sig höggið í stað þess að láta það lenda á okkur hinum.