Framfaraflokkurinn

Þegar ég sagði Eygló að það væri búið að stofna flokk spurði hún hvað hann héti. Ég sagði Framfaraflokkur og hún sagði “ææ”. Það er eiginlega það sama og ég hugsaði. Það kom mér ekki á óvart á að bak við þetta fyrirbæri væri Sturla Jónsson vörubílstjóri. Merkilegt nokk tel ég að hann sé ekki það sem landið þarf á að halda á þessum tímapunkti.