Rétt rúmar tvær milljónir á mann

Þegar ég reiknaði þetta á föstudag var þetta rétt rúmar tvær milljónir á hvert mannsbarn. Ég gæti svo sem hafa ruglast enda er þetta mikið af núllum. Ég benti yfirmanni mínum strax á að ég þyrfti launahækkun ef ég ætlaði að borga minn part. Satt best að segja þá var ég bara feginn að þetta er ekki meira og það segir kannski mest um svartsýnina.

En jú, það eru til eignir upp í þetta nema að þær eru kannski bara bólur sem voru blásnar upp.