Í dag var haldinn blaðamannafundur af því að loks var hægt að kynna IMF plaggið. Ekki af því að DV hafði þegar birt það. Það var bara tilviljun.
Í dag var líka upplýst að við þyrftum í raun bara fimm milljarða dollara. Það er ekki í neinu samhengi við að ekki náðist að safna nema fimm milljörðum. Það var líka tilviljun.
Af einhverjum sökum á ég bágt með að trúa ráðamönnum.