Fimmti vinsælasti bloggarinn

Ég virðist vera fimmti vinsælasti bloggarinn á landinu (miðað við þá sem koma í gegnum BloggGáttina). Ég verð að játa að ég er hissa. Í fyrra varð ég reyndar í fjórða sæti en ég bjóst ekki við að enda svona hátt aftur. Ætli ég hafi ekki verið örlítið hærri fyrir fyrrihluta ársins og lægri fyrir seinni hluta ársins. En þetta er ágætt. Þarna er maður að berjast á jafnréttisgrundvelli (nema að því leyti að þeir sem eru ofar en ég eru líka töluvert frægari en ég).

Ég er allavega sáttur við stöðu mína þarna.