Ég get eiginlega ekki hætt að verða hissa á því hve Samfylkingarmenn eru mislukkaðir þegar kemur að því að reyna að vinna VG liða á sitt band. Kattarútspilið er hálfgert met í þessu. Í fyrsta lagi þá pirrast allir yfir því að heyra að forsætisráðherrann vilji smala þeim og í öðru lagi þá er bara frábært að vera köttur og þar með ástæðulaust að breyta nokkru. Þetta er líka svo fráleitt útspil frá konunni sem var sjálf fræg fyrir að vera til vandræða í ríkisstjórn.