Samkvæmt grein sem ég var að lesa er búið að gefa út Harry Potter bækurnar án „tæknilegra“ afritunarvarna. Í staðinn er „vatnsmerki“ (einhvers konar „social DRM“) á bókunum sem gerir eintakið rekjanlegt ef það fer í sjóræningjadeilingu. Mér skilst að blindrabókasöfn noti sömu aðferðir á sínar bækur.
Þetta þýðir að kaupendur geta stjórnað því sjálfir hvernig þeir varðveita sínar Harry Potter bækur. Það er miklu öruggara kerfi fyrir neytendur. Þeir geta jafnvel sent sjálfum sér bókina í tölvupósti eða sett hana í einhverja skýjaborg (með læstum aðgangi) og varið sig afleiðingum þess þegar tækin þeirra bila eða eru uppfærð.
Það er rétt að nefna að Harry Potter bækurnar eru fyrir löngu komnar í sjóræningjadreifingu. Þannig má segja að Rowling hafi ekki jafn miklu að tapa og þeir sem eru til dæmis að gefa út nýjar bækur. Það er þó mikilvægt að gera ekki of mikið úr þessu því allar líkur eru á að nýjar rafbækur sem eru seldar í einhverju upplagi fari hvorteðer í sjóræningjadreifingu hvað sem líður öllum afritunarvörnum.
En þetta er allavega áhugaverð þróun.
