Við Ingimar áttum bara eftir að sjá eina mynd af þeim fimm sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna þannig að við skelltum okkur á hana. Mín staðfasta trú að það sé best að vita ekkert um kvikmyndir áður en ég sé þær kom kannski aðeins í bakið á mér. Þessi mynd er ekki beinlínis krakkamynd. Ingimar hefur samt sérstaklega gaman af „hreyfimyndum“ þannig að ég hefði líklega slegið til ef ég hefði vitað meira.
Í Memoir of a Snail heyrum við Grace (sem er ekki snigill) tala við Silvíu (sem er snigill) um ævi sína. Andlát ástvina, félagsleg einangrun og þunglyndi setja mark sitt á erfiða ævi. Myndin er sorgleg en líka fyndin.
Eftir að hafa séð allar myndirnar sem eru tilnefndar til Óskarsverðlauna í flokki „hreyfi-“ og teiknimynda get ég sagt hreint út að þessi er langbest. Ekki bara það, hún er líka ein besta mynd síðasta árs.