Let Me In (2010)👍

Owen er mobbaður strákur í Los Alamos í Nýju Mexíkó í marsmánuði árið 1983. Endurgerð á Låt Den Rätte Komma In.

Eftir að hafa horft á upprunalegu sænsku útgáfuna ákvað ég að lesa bókina (á sænsku) og kláraði hana í gærkvöldi. Þannig að ég gat dæmt um fullyrðingar um að bandaríska útgáfan væri 1) betri og 2) að hún væri frekar byggð á bókinni en myndinni.

Svarið er Let Me In er hvorki 1) betri en sænska myndin né 2) byggð nokkuð á bókinni. Það mætti jafnvel segja að hún sé fjarlægari upprunalegu sögunni. Sérstaklega vantar mannlega vinkilinn sem fylgir genginu á kínverska veitingastaðnum.

Let Me In fer ekki meira inn í baksöguna en sú sænska. Eiginlega aðeins minna því krípí skotið er ekki með hérna.

Chloë Grace Moretz er auðvitað ákaflega góð í öðru aðalhlutverkinu og stendur svolítið upp úr. Ég fletti upp hvað hún hefði verið gömul þegar þessi mynd var gerð og hún svona 12-13 ára en svo áttaði ég mig að það þýddi að hún væri orðin 28 ára í dag! Þessar barnastjörnur eldast alltaf hraðar og hraðar. Þessi var samt áður ég tók eftir henni í KickAss-myndunum og Hugo.

Þetta er fín mynd og ef ég hefði séð hana á undan hefði mér kannski þótt hún ennþá betri.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *