Dick Tracy (1990)👍

Dick Tracy er teiknimyndasögulögga sem berst við undarlega glæpamenn með talstöð í úrinu sínu.

Þegar á leið myndina sannfærðist ég um að þrátt fyrir að ég hafi ekki munað það fyrirfram þá hefði í raun séð þessa mynd áður. Hún var bara ekki áhugaverð á litlum sjónvarpsskjá.

Útlitið, stæling á myndasögustílnum, er það áhugaverðasta við myndina. Það gerir hana þess virði að leita uppi og sjá. Hún er rökrétt „framhald“ af Batman Tim Burton sem kom út árið áður. Danny Elfman sér meira að segja um tónlistina hér (og stundum er hún full lík Batman).

Warren Beatty leikstýrði og leikur titilhlutverkið. Leikaravalið er ótrúlegt og vegna þess að allir eru farðaðir í botn eru sumir óþekkjanlegir.

  • Al Pacino
  • Catherine O’Hara
  • Charles Durning
  • Colm Meaney
  • Dick Van Dyke
  • Dustin Hoffman
  • Estelle Parsons
  • Glenne Headly
  • James Caan
  • Kathy Bates
  • Madonna
  • Mandy Patinkin
  • Michael J. Pollard
  • Paul Sorvino
  • Seymour Cassel
  • William Forsythe

Flestir nýta tækifærið og ofleika skemmtilega. Reyndar misskemmtilega. Söguþráðurinn sjálfur er rugl.

Það er síðan áhugavert að Warren Beatty lenti í langdregnum málaferlum til þess að halda réttindunum yfir persónunni Dick Tracy. Til þess að viðhalda þeim gerði hann nokkra staka sjónvarpsþætti þar sem Leonard Maltin tekur viðtal við Dick Tracy. Undarlegheit.

Maltin gefur einmitt ★★★.