Kick-Ass (2010)👍👍

Ungur maður ákveður að kaupa sér blautbúning og berjast við glæpamenn.

Það er ekki frumlegt að afbyggja teiknimyndasöguhetjur. Það að gera það svona vel er afrek.

Kick-Ass er vissulega ofbeldisfull en ég verð að segja að mér þykir það heiðarlegra en það sem við sjáum almennt í ofurhetjukvikmyndum. Það er ekki verið að fegra morðin og fela blóðið til þess að fá yngri krakka í bíósali.

Kick-Ass er titilpersóna myndarinnar, leikinn af Aaron Taylor-Johnson sem hefur víst komið fram í áhugaverðum myndum þó ég hafi ekki beint tekið eftir honum þar.

Nicolas Cage er Big-Daddy, og þetta er skemmtilegur Cage sem dansar réttum megin við línuna.

Hit-Girl er samt númer eitt, tvö og þrjú. Chloë Grace Moretz nær að vera krúttlegi krakkinn og miskunnarlausa drápstólið. Sérstaklega í atriðinu þar sem spagettívestraþema Ennio Morricone gefur tóninn.

Skondið að þetta sé sama ár og Let Me In. Fæstar barnastjörnur ná að skilja eftir sig jafn blóðuga slóð.

Auðvitað finnst mér þetta betri mynd en MCU-myndirnar eða Batman-myndirnar hans Nolan … Spider-Verse er hins vegar annað mál.

Craig Ferguson kemur snöggt fyrir í sjónvarpi sem hann sjálfur. Og gleymum ekki McLovin.

Maltin gefur ★★ sem er í hans anda.

Ég þarf endilega að lesa teiknimyndasögurnar.