Hjúkrunarfræðingur nær persónulegu sambandi við guð en það hjálpar henni ekki að komast yfir eigin áföll eða tengjast öðru fólki. Sálfræðileg hryllingsmynd um einmannaleika.
Þar sem ég var ákaflega hrifinn af Love Lies Bleeding setti ég Saint Maud, fyrri mynd Rose Glass, á stóra listann minn. Þær eru ákaflega ólíkar nema að því leyti að setja fókusinn á konur.
Myndin nýtir sér það að vera á smáum skala. Fáar persónur, fáir tökustaðir og einungis 84 mínútur að lengd. Hún þrengir að áhorfandanum sem veit ekki alltaf hvað er á seyði.