Subway (1985)🫴

Glæpamaðurinn Christopher Lambert reynir að heilla fegurðardísina Isabelle Adjani milli þess sem hann lendir í ævintýrum í neðanjarðarlestarkerfi Parísar.

Luc Besson gerði eina af mínum uppáhaldsmyndum en ég er ekki sérstaklega hrifinn af öðrum myndum hans. Þær eru ekki slæmar þannig séð, bara ekki sérstaklega góðar.

Það sama gildir um Subway. Söguþráðurinn er þvæla. Hún keyrir áfram á útlitinu og sjarma aðalleikaranna (sem hefðu samt getað gert meira ef persónurnar þeirra hefðu verið áhugaverðari). Það er ekkert mikið meira við myndina. Nema auðvitað að sjá Jean Reno í öðruvísi hlutverki en við erum vön.

Maltin gefur ★★ sem er á réttu svæði.