High-Rise (2015)🫳

Allt fer úr böndunum í nýreistu háhýsi. Byggt á samnefndri bók J. G. Ballard.

Free-Fire var nægilega áhugaverð til þess að ég ákvað að skoða aðra mynd frá hjónunum Ben Wheatley og Amy Jump. Þessi mynd er einmitt líka áhugaverð en ekki sérstaklega góð, eiginlega verri en Free-Fire. Það besta sem ég get sagt um hana er að það voru nokkrar fyndnar línur.

High-Rise inniheldur þjóðfélagslega gagnrýni, sem ég held að ég sé að mestu sammála, en umgjörðin er dregur úr allri vigt. Annað hvort veit þessi mynd ekki hvað hún vill vera eða hún einfaldlega missir fullkomlega marks. Maukuð mynd, maukaður boðskapur.

Tom Hiddleston bjargar því litla sem bjargað verður og Elisabeth Moss (sem ég vissi ekki að væri hálf-bresk) er góð þó hún fái lítið að gera.