The Phoenician Scheme (2025)👍👍

Auðjöfur reynir að tryggja arfleifð sína í skugga stanslausrar ógnar.

Nú er málið að mér líkar almennt við myndir Wes Anderson. Þær eru ekki allar frábærar en þær gleðja mig samt alltaf. Ég er hrifinn af litunum og samhverfunni. Ég held að The Phoenician Scheme sé ekki nálægt toppnum en allavega betri en t.d. Asteroid City og Darjeeling. Mögulega á svipuðum slóðum French Dispatch (sem mér fannst betri en mörgum).

Það væri óhóflegt að telja upp alla frægu leikara myndarinnar. Mikið af fastagengi Anderson koma í stutt innlit. Burðarhlutverkin eru Benicio del Toro, Mia Threapleton (dóttir Kate Winslett) og Michael Cera.

Mia Threapleton stendur sérstaklega uppúr. Aldrei séð hana í mynd áður. Michael Cera er með ágætis norskan hreim. Spurning hvort Norðmaðurinn Richard Ayoade, sem er í frekar stóru aukahlutverki, hafi leiðbeint honum. Benicio del Toro er líka góður. Sjokkerandi.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *