bíóUngur maður tekur pillu frá skrýtnum gaur og uppgötvar að hann er hinn eini sem er hentugt af því hann getur bara raðað stöfunum í skjánafninu sínu upp á nýtt. Neo sko.
Ég var ekki hrifnn af Matrix þegar ég sá hana fyrst (á spólu) og hef ekki horft á hana síðan. Allt þetta „hinn útvaldi“ pirrar mig. Mig langaði að gefa henni annan séns og athuga hvort ég myndi sjá og skilja eitthvað meira út frá því sem er augljóslega líkingarmál um trans fólk.
- The Matrix er mun betri mynd en ég hélt.
- The Matrix er ógeðslega fyndin, viljandi.
Það var rosalega skrýtin upplifun að vera í fullum bíósal og sjá fólk stara á tjaldið í þögulli aðdáun þegar í gangi eru stórfyndin atriði. Keanu Reeves segir „woah“ og fólk hlær bókstaflega ekkert.
Hefur fólk alltaf tekið The Matrix svona alvarlega eða er þetta í kjölfar þess að fólk telur myndina vera meistaraverk? Mögulega er eitthvað óvart fyndið en ég held eiginlega ekki.
Maltin gefur ★★½ sem er í lægri kantinum en ekki mikið minna en hún á skilið. Hann segir líka að hún sé með „a high MJQ (Mumbo-Jumbo Quotient)“.