2002 eyðir stúlka síðasta ári skólaskyldunnar í að rífast við mömmu sína, eltast við stráka og dreyma um að sleppa frá Sacramento. Hún giftist ekki verðandi forseta Bandaríkjanna. Það var misskilningur af minni hálfu og varð til þess að ég frestaði alltaf að kíkja á myndina.
Greta Gerwig er leikkona, handritshöfundur og leikstjóri. Hún leikstýrði Barbie. Árið 2002 kláraði hún skólaskylduna og flutti frá Sacramento til New York. Sumsé, frekar sjálfsævisöguleg mynd.
Saoirse Ronan leikur titilhlutverkið og áður en ég kláraði að skrifa þessa setningu fletti ég henni upp til að komast að því hvort hún væri í alvörunni írsk (mjög írskt nafn og síðan er millinafnið hennar Una) og hún er það vissulega en mér fannst skemmtilegt að sjá að hún bjó með fjölskyldunni sinni í bæ sem heitir Howth sem er dregið af norræna orðinu höfuð. Svo segir Wikipedia, af samhenginu myndi ég giska að þetta sé orðið höfði.
Aðalpersónan Lady Bird er á köflum óþolandi en það er hlutverk unglinga. Mamma hennar er leikin af Laurie Metcalf sem hefur leikið í ótalmörgu en ég man helst eftir henni fyrir að leika systur Roseanne í samnefndri sjónvarpsþáttaröð. Mamma er líka frekar óþolandi á köflum. Pabbinn sleppur betur. Timothée Chalamet er samt verstur, persónan hans.
Fólk er svo hrifið af þessari mynd að ég bjóst jafnvel við meiru en varð samt ekkert fyrir sérstökum vonbrigðum. Góð myndi.