Elio (2025)👍

Elio er ungur drengur sem þráir að sleppa út í geim eftir að hafa upplifað harmleik á jörðu niðri.

Það eru ákveðnar vonir byggðar við Pixar myndir og þetta er ekki ein af þeim bestu. Markmiðið er að hafa tilfinningaríka sögu en í staðinn fáum við eiginlega bara væmni.

Það sem er gott við myndina er geimurinn, Carl Sagan og Voyager. Geimrusl kemur við sögu sem minnti mig á þátt af breskum sjónvarpsþátt sem ég held að hafa kallast City og fjallaði um hlutabréfabraskara. Einn þeirra leysti geimruslvandann með kapítalismann að vopni. Það var líklega árið 1988.

Svo er vísun í Alf. Það var líka gott.

Verst var reyndar óþolandi krakkar að hanga í símunum og taka sjálfsmyndir. Ég fékk starfsmann til að kíkja inn í sal rétt eftir hlé en hann gerði akkúrat það, kíkti og missti af. Það var eiginlega nákvæmlega á sama tíma sem ég heyrði hurðina skellast á eftir honum að símarnir fóru á loft.

Bíógestir virðast alveg lausir við nokkrar áhyggjur af því að starfsmenn trufli þá við símanotkun. Þvílíkt ógurlegt metnaðarleysi hjá bíóhúsum almennt.

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *