Atonement (2007)🫳

Ástir, lygar og afbrot í skugga stéttaskiptingar og fordóma á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar í Englandi.

Mynd sem mig grunaði alltaf að yrði erfið þannig að ég lét hana alltaf bíða. Leikararnir eru allir góðir. Langa skotið er ákaflega flott. Framan af greip hún mig. Tímaflakkið var samt að miklu leyti óþarft.

Í lokin hrynur allt sem hefur verið byggt upp. Það að setja mynd sem er leikstýrt af karlmanni, skrifuð af karlmanni og byggð á bók eftir karlmann í búning sjálfsævisögu konu skilur eftir óbragð í munninum. Ég mun ekki frekar en venjulega fara út í söguþráðinn en efnið er það viðkvæmt að ég get ekki komist yfir þetta.

Bláendirinn á myndinni hafði í kjölfarið enga tilfinningalega vigt.

Nú hef ég ekki lesið bókina en kannski er það öðruvísi þegar þú ert með nafnið á höfundinum með stórum stöfum framan á henni. Mig grunar samt að þetta sé samt slæmt þar líka.

Ég veit ekki hvort ég hefði verið á sömu skoðun ef ég hefði séð hana 2007 enda hef ég lært töluvert í millitíðinni.

Maltin gefur ★★ sem er sanngjarnt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *