The Ice Storm (1997)🫴

Tvær fjölskyldur upplifa mjög dramatískan ísstorm.

Myndin er uppfull af leikurum sem mér líkar við. Kevin Kline, Sigourney Weaver, Elijah Wood, Christina Ricci … Samt virkaði myndin ekki á mig. Tobey Maguire var þarna líka en hans hluti myndarinnar virkaði svo ótengdur öllum hinum að það hefði næstum mátt sleppa honum.

Þetta virkaði bara svolítið þvingað allt saman. Kannski er það hve viljandi tilfinningalega fjarlægar persónurnar eru sem varð til þess að ég náði ekki að tengja við söguna. Það hjálpaði líklega ekki að á ákveðnum tímapunkti mundi ég að ég hafði heyrt um dramatískan hápunkt myndarinnar og var eiginlega bara að bíða eftir honum.

Maltin gefur ★★½ þó margir gagnrýnendur elskuðu þessa mynd. Hann er á svipaðri skoðun og ég. Mér fannst fötin líka skemmtileg. Síðan kemur ein af þessum beittu línum sem Leonard laumar stundum og er eiginlega harkalegri en stjörnuskorturinn.

A film one can admire without actually enjoying.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *