Isle of Dogs (2018)👍👍

Japanskt ættarklan hyggur á hefndir gegn hundum, mun samúræjastrákurinn snúa aftur til að bjarga bestu vinum mannsins?

Nafnið er skemmtilegt. Ef þú fattar ekki, prufaðu að segja það nokkrum sinnum hratt.

Isle of Dogs
Isle of Dogs
Isle of Dogs

Öll fjölskyldan horfði saman á þessa Wes Anderson mynd og allir skemmtu sér vel (þó sumir hafi dottað). Það er fyndið að stoppkvikmyndir Wes Anderson líta alveg eins út og leiknu kvikmyndirnar hans. Kannski viðeigandi af því sviðsmyndir hans líta svolítið út eins og dúkkuhús.

Hundarnir eru allir raddaðir af frægum leikurum. Það er gaman að reyna að átta sig á því hver er hver. Það er auðvitað vísbending fólgin í því að Wes Anderson notar sömu leikarana aftur og aftur.

Mögulega var ég aðeins hrifnari af hinni stoppkvikmyndinni hans, Fantastic Mr. Fox (2009). Ekki að það skipti máli, bara í mín uppröðun á uppáhalds Wes Anderson myndunum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *