Totally Killer (2023)👍👍

Fyrir rúmum þrjátíu árum voru þrjár sextán ára stúlkur myrtar í smábæ. Jafnaldra þeirra í nútímanum vill komast að því sanna og uppgötvar ýmislegt um fortíð foreldra sinna. Eiginlega hryllingsmynd og gamanmynd en fellur samt helst í þriðja flokkinn.

Nú vissi ég nokkurn veginn um hvað myndin snerist en eins og venjulega sleppi ég því sem gæti höskuldað myndina fyrir fólki. Ef þið viljið vita meira þá er til gagngrunnur um kvikmyndir og sjónvarpsþætti sem uppljóstrar þessu í einnar setningar lýsingu á kvikmyndinni.¹ Þið getið líka kíkt á efnisorðin með þessarri bloggfærslu því þau gefa vísbendingar.

Í aðalhlutverki er Kiernan Shipka sem er helst þekkt fyrir að vera nýja Sabrina unglingsnornin. Ég gafst reyndar upp á þeim þáttum og hinu Riverdale-dótinu þegar það fór í full undarlegar (en ekki skemmtilegar) áttir. Julie Bowen (úr Ed og Nýmóðins fjölskyldu) leikur mömmuna. Síðan er hlutverk skerfarans í höndum Randall Park.

Ég féll alveg fyrir myndinni. Húmorinn virkaði á mig og mér þóttu vísanirnar í kvikmyndir níunda áratugarins skemmtilegar (titillinn er líka stelpudalíska). Mig grunar að ég eigi eftir að horfa á hana aftur til að athuga hvort ég sjá einhverjar gloppur, ég tók ekki eftir neinum við fyrstu sýn.

¹ Auðvitað er ég að tala um The Movie Database (TMDB) af því það sá gagnagrunnur er ekki í eigu Amazon. Miklu opnara. Þar fæ ég allar myndirnar og lógóin sem ég nota í sem myndskreytingar í þessum færslum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *