Arfleifð Davíðs Oddssonar í geisladiskasafni heimilisins.

Undanfarið hef ég verið að fara yfir geisladiskasafn heimilisins. Það er nefnilega ekki allt á streymisveitunum. Sérstaklega ekki íslenskt efni. Svo skringilega vill til að í þessari yfirferð hefur mér nokkrum sinnum verið hugsað til Davíðs Oddssonar og var búinn að stefna á að skrifa um það nokkur orð.

Árið 1995 hélt Ísland heimsmeistaramótið í handbolta. Af því tilefni gáfu Ferðamálaráð Íslands og DV út geisladisk með einkennislagi keppninnar sem hét Bræðralag. Miðað við að það er ekkert strikamerki á umslaginu geri ég ráð fyrir að tónlistarunnendur hafi getað fengið diskinn gefins. Það eru allar líkur á að ég hafi heyrt lagið á einhverjum tímapunkti en ég man ekkert eftir því.

Lagið Bræðralag kemur úr smiðju Gunnars Þórðarsonar en ljóðið er eftir Davíð sjálfan. Því miður finn ég nær engar upplýsingar um lagið og tilkomu þess. Ég geri samt ráð fyrir því að Bræðralag hafi verið valið í einhvers konar keppni frekar en það hafi bara verið ákveðið að fá sitjandi forsætisráðherra í verkið.

Annar diskur sem finnst því miður ekki heldur á Spotify er Tíu fingur upp til guðs (eða tíufingurupptilguðs) sem er ákaflega vanmetin diskur frá Heiðu og heiðingjunum. Hann kom út árið 2003 og endurspeglar samtíð sína. Þar má til dæmis finna lagið Sakleysi sem mótmælir stuðningi Íslands við innrásina í Írak.

Þið munið hve dyggilega Davíð og Halldór Ásgrímsson studdu við bakið á George W. Bush í hernaðarbrölti hans? Helsta markmið þeirra virðist auðvitað hafi verið að tryggja áframhaldandi starfsemi herstöðvarinnar á Miðnesheiði … sem gekk ekki betur en svo að árið 2005 var ákveðið að loka henni.

Að gefnu tilefni er stuttskífa sem Dr. Gunni gaf út með mótmælalögum rétt fyrir Bankahrunið. Það fjallar um þá spillingu og græðgi sem öllu réð í samfélaginu á þessum árum. Þarna er til að mynda rifjað upp eftirlaunafrumvarp Davíðs sem er eftirminnilegt fyrir það hve marga „andstæðinga“ hann fékk til liðs við sig.

Að lokum er það auðvitað Vangelis. Heimildarmyndaþáttarröðin Saga 20. aldarinnar sem Ríkisútvarpið sýndi undir lok valdatíma Davíðs Oddssonar var mjög umtöluð á sínum tíma. Tónlistarvalið var sérstaklega áhugavert. Líklega var það Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem ákvað að spila þemalagið úr Óskarsverðlaunaólympíumyndinni Chariots of Fire undir atriðinu þegar Davíð sigraði í formannskjöri Sjálfsstæðisflokksins árið 1991. Þetta hefur væntanlega verið einlægt af hans hálfu en kannski að aðrir aðstandendur hafi vitað að oflof er háð.

Mig grunar reyndar að Davíð komi við sögu í ýmsum lagatextum í geisladiskasafninu en þetta var það sem stóð uppúr.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *