The Bride! (2026) ★★★★⯪👍👍

Kona neyðist til að byggja líf sitt upp á nýtt og uppgötva hver hún sé í raun.

Fólk hefur mjög ólíkar skoðanir á The Bride! og neikvæðu raddirnar virðast háværari. Ég elskaði hana. Það hjálpaði örugglega töluvert að hafa horft á upprunalegu Bride of Frankenstein svona rétt áður. Ef reynsla fólks af Frankenstein er að hafa séð alvarlegar nútímaútgáfurnar geri ég ráð fyrir að tónninn virki skringilega á það.

Það sem fólk kvartar helst yfir varðandi Bride of Frankenstein er hve lítið sést af titilpersónunni. The Bride! svarar þessu ákalli. Í henni er mikið spilað með tengslin við fyrri Frankenstein-myndir og upprunalegu bókina. Inngangurinn leikur sér skemmtilega með römmunartæki útgáfunnar frá 1935. Um leið beinir hún kastljósinu að Mary Wollstonecraft Godwin Shelley.

Maggie Gyllenhaal skrifaði handrit The Bride! og leikstýrði. Hún virðist hafa séð það sama og ég þegar hún loksins kom sér í að horfa á upprunalegu útgáfuna.¹ Frankenstein er óviljandi skírlífur (incel) í leit að maka. Hún vinnur samt ekki úr þeirri hugmynd á þann hátt sem flestir myndu gera ráð fyrir að femínskur höfundur gerði. Gyllenhaal hefur töluvert meiri samúð með skrýmslinu og sjálfsfyrirlitningu þess.

The Bride! er kvikmyndanördakvikmynd. Ég á ekki við að allir sem elska kvikmyndir og þekki sögu kvikmynda muni elska hana en hún er uppfull af vísunum. Það vory til dæmis tvær vísanir í Marx-bræðra myndina Duck Soup sem glöddu mig. Söngleikir fjórða áratugarins spila líka stórt hlutverk.

Jessie Buckley er mögnuð og Christian Bale hefur aldrei verið betri. Annette Benning er brjálaður vísindamaður. Peter Sarsgaard (herra Gyllenhaal) og Penélope Cruz eru löggur.

The Bride! er ógurlega skrýtin mynd en ég myndi jafnvel segja að hún sé meistarastykki. Gagnrýnendur líkja henni margir við Frankenstein sjálfan af því hún er saumuð saman úr svo mörgum ólíkum hugmyndum en virðast ekki skilja að það er meining fólgin í því. Ég get tekið undir að það er ekki alltaf unnið frábærlega úr öllum hugmyndunum en í mínum huga lækkar það hana bara um hálfa stjörnu.

Ég geri fastlega ráð fyrir að The Bride! finni sinn aðdáendahóp þó það taki kannski tíma.

Óli gefur ★★★★⯪👍👍

¹ Einhvers staðar heyrði ég þá útgáfu af sögunni að eiginmaður Gyllenhaal væri með húðflúr af brúðinni en hún sá það víst bara svoleiðis í partíi og áttaði sig á að hún hefði aldrei séð Bride of Frankenstein.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *