Samkvæmt Letterboxd hef ég séð 57 myndir frá árinu 2025. Ég myndi telja öðruvísi.
Ég þyrfti að horfa á þær aftur til að vera viss um hvor sé betri en ég held að Companion hafi verið besta mynd ársins 2025 og að Dust Bunny fái annað sætið. Rental Family er nokkuð örugg í því þriðja.
Hérna er listi yfir þær myndir sem mér fannst standa uppúr í fyrra. Þið takið líklega eftir að ég hef ekki verið duglegur að skrifa undanfarið.
-
- Companion (2025)
- Dust Bunny (2025)
- Rental Family (2025)
- Was Marielle weiß (2025)
- Die My Love (2025)
- Bugonia (2025)
- Un simple accident (2025)
- Black Bag (2025)
- Death of a Unicorn (2025)
- Nouvelle Vague (2025)
- La petite dernière (2025)
- Marty Supreme (2025)
- Affeksjonsverdi / Tilfinningagildi / Sentimental Value (2025)
- O Agente Secreto / The Secret Agent (2025)
Óskarinn
Álit mitt á Óskarsverðlaununum sést kannski best á því að ég hélt að þau yrðu viku seinna þannig að ég skrifaði ekkert fyrirfram. Ég hef fengið leið á giskleikjunum sem fara fram fyrir hverja afhendingu þannig að ég hefði hvort eð er sleppt því.
Ef ég ætti að setja þá mynd sem fékk Óskarinn sem besta mynd ársins 2025 á listanum hér að ofan myndi hann vera mikið lengri því hún er í þrítugasta og fimmta sæti hjá mér. One Battle After Another er Driving Miss Daisy þessa árs. Þetta er mynd sem þykist taka á málefnum en segir ekki neitt áhugavert. Af þeim kvikmyndum sem ég hef séð og voru tilnefndar var Bugonia best.
Þá var ég ekki hrifinn af því að Sean Penn var valinn besti leikari í aukahlutverki fyrir One Battle. Mig minnir að einhver hjá New Yorker hafi orðað það þannig að Sean Penn hefði í raun verið verðlaunaður fyrir mestan leik í aðalhlutverki. Það passar. Hann er ennþá í I am Sam pakkanum.
Mig grunar að ég hafi kannski verið of harður við Sinners þegar ég gaf henni bara þrjár og hálfa stjörnu. Ég vonaði allavega að hún yrði valin besta myndin frekar en One Battle.
Ég var glaður að Michael B. Jordan vann Dicaprio sem besti leikari í aðalhlutverki. Ég spyr samt fyrir hvort hlutverkið hann hafi fengið verðlaunin. Það gladdi mig auðvitað að Community-tónskáldið Ludwig Göranson hafi fengið sín þriðju Óskarsverðlaun fyrir Sinners. Verst að Ryan Coogler náði ekki verðlaunum sem besti leikstjóri af P.T. Anderson.
Þar sem ég elskaði Jessie Buckley í The Bride! get ég ekki verið ósáttur við að hún var valin besta leikkonan þó Hamnet hafi ekki verið stórkostleg mynd.
Amy Madigan var mjög fín í Weapons en þessi verðlaun voru meira fyrir feril hennar en það hlutverk.
Ég hef ekki séð KPop Demon Hunters en ég er voðalega feginn að andlaust innlegg Pixar vann ekki. Það virtist eitthvað vanta í Elio og seinna fékk ég skýringu. Hún átti að fjalla leynt og ljóst um hinsegin persónur en hugleysingjarnir hjá Disney fjarlægðu allt ljóst og ýmislegt leynt.
Norska myndin Tilfinningagildi hlaut verðlaunin sem besta alþjóðlega myndin. Ég er sáttur við það. O Agente Secreto hefði líka mátt vinna. Sirāt er meira áhugaverð en góð. Ég hef ekki séð Rödd Hind Rajab.
Ef ég ætti að raða þeim kvikmyndum sem voru tilnefndnar sem besta mynd ársins í 2025:
- Bugonia
- Marty Supreme
- Affeksjonsverdi / Tilfinningagildi / Sentimental Value
- O Agente Secreto / The Secret Agent
- Hamnet
- Sinners
- Train Dreams
- One Battle after Another
F1 hef ég ekki séð af einskæru áhugaleysi. Brúmmbrúmm kvikmyndir heilla mig almennt ekkert.
Frankenstein hefur fengið að mæta afgangi. Ég ætlaði að horfa á hana fyrir Óskarinn en misreiknaði mig eins og ég nefndi hér að ofan.
