Unglingur á við tilfinningavanda að stríða og reynir að leysa gátur alheimsins.
Það var skemmtilegt að sjá aðra Gyllenhall-mynd svona fljótt eftir The Bride! Jake og Maggie leika einmitt systkini í Donnie Darko. Mary McDonnell er mamma þeirra. Drew Barrymore (einn framleiðandi myndarinnar) og Noah Wyle eru kennarar. Jena Malone er nýja stelpan í skólanum. Patrick Swayze er vel valinn í óvenjulegt hlutverk. Við fáum líka Seth Rogen í hlutverki sem sýnir að hans ferill hefði alveg getað leitt eitthvað allt annað.
Á nokkrum tímapunktum fann ég fyrir aldri mínum í bíósalnum. Þegar forsetaframbjóðandinn George H.W. Bush fór að tala um Panama og hve frábær Noriega væri hló ég innilega. Gunnsteinn sagði að ég hafi síðan verið algjörlega einn um að fatta þegar rithöfundinum Graham Greene var ruglað saman við nafna sinn leikarann.
Donnie Darko sveif framhjá mér líkt og flestum öðrum á sínum tíma. Fáar myndir sem voru frumsýndar í kringum 11. september 2011 græddu á því og það hjálpaði ekki að það er vísun í flugslys snemma í myndinni.
Ásgeir vinur var meðal þeirra fyrstu sem hreifst af Donnie Darko og mælti örugglega ítrekað með.¹ Hún endaði á áhorfslistanum mínum en líklega beið hún því ég mundi aldrei hvort hann hefði verið að tala um Darko eða Brasco.
Það er eiginlega ekki séns að tala meira um Donnie Darko án þess að höskulda dálítið. Ef þið hafið ekki séð hana látið ykkur duga að vita að hún er gölluð en góð.
Þegar ég sá Donnie Darko loksins féll ég alveg fyrir henni. Lagavalið í endinum, útgáfa Michael Andrews og Gary Jules á Tears For Fears laginu Mad World, er einstaklega áhrifamikið.
Donnie Darko gerist árið 1988 og, ef mér yfirsést ekkert, eru öll dægurlögin í myndinni frá nýbylgjuhljómsveitum. Það er kannski sérstaklega viðeigandi að nota Love Will Tear Us Apart því það parast ákaflega vel við upprunalegu útgáfu Tear For Fears á Mad World. Sumsé það hvernig örvænting textans er falin með tónlist sem gefur til kynna miklu hressara innihald.
Donnie Darko hefur verið löstuð og lofuð eftir því sem liðið hefur verið á öldina. Það er jafnvel sagt að hún upphefji sjálfsmorð. Ég held ekki. Til dæmis verður ljóst við annað að áhorf að „lausn“ Donnie er ákaflega gölluð.
Patrick Swayze verður ekki afhjúpaður í nýrri tímalínu. Gretchen mun kannski lifa en hvað með mömmu hennar? Hefði ekki verið betra að fara einhverjar aðrar leiðir? Allavega reyna? Er ákvörðun hans byggð á ást eða ótta? Hann skilur allavega eftir veröld í óreiðu.
Ég er hrifinn af grunnhugmyndinni í Donnie Darko. Lúppan er vel heppnuð. Tilvistarspekin er óspennandi. En hún hittir í tilfinningarnar.
Maltin gefur ★★☆☆.
Óli gefur ★★★★☆👍👍
¹ Það hefur líklega glatt Ásgeir hvernig Donnie Darko kallast, óviljandi samkvæmt leikstjóranum Richard Kelly, á við Jimmy Stewart myndina Harvey (1950).
