Belgísk húsmóðir sinnir heimilinu, syninum og hjáverkum í um tvöhundruð mínútur.
Frá árinu 1952 hefur Sight & Sound birt lista yfir bestu myndir allra tíma. Þessir listar hafa mótað álit fólks á kvikmyndum. Lengst af var Citizen Kane á toppnum en árið 2012 skaust Vertigo efst.¹ Himinn og jörð skóku síðan árið 2022 þegar Jeanne Dielman, 23, quai du Commerce, 1080 Bruxelles fór á toppinn.
Það eru örugglega margar ástæður fyrir þessum umhleypingum. Það sem ég held að skipti mestu máli er að gagnrýnendum finnst núorðið skemmtilegast að benda áhorfendum á myndir sem það hefur ekki séð áður frekar en að hylla gömlu goðin. Ekki man ég eftir að hafa heyrt um Jeanne Dielman áður en ég sá hana á þessum lista.
Ég bjóst sumsé ekki við að ég myndi sjá bestu mynd allra tíma þegar ég fór á Jeanne Dielman á Svörtum sunnudögum í Bíó Paradís. Fólk mælir almennt með að sjá hana í bíó af því að heima við er of mikil freisting að kíkja á síma (þó sumir nú til dags haldi að það sé allt í lagi í bíó). Fókus er nauðsynleg til að njóta hennar.
Það sem er skrýtnast við Jeanne Dielman er að mér leiddist aldrei. Þetta er mynd þar sem kona snýr bakinu í myndavélina til að vaska upp í rauntíma. Af hverju fór ég ekki strax að geispa? Aðallega leið mér eins og við áhorfendur værum að gægjast.
Í Jeanne Dielman verða lítilvæg atriði að áhugaverðum gátum. Hvað kom fyrir kartöflurnar? Af hverju gerði hún þetta en ekki hitt. Bíó í hægferð.
Stóri leyndardómurinn er hins vegar hvað gerðist. Ég gat ekki fundið útúr því. Aftur á móti slysaðist ég til að fá skýringu leikstjórans sjálfs, hennar Chantal Akerman, í athugasemd „b.“ í Wikipediugreininni um Jeanne Dielman.
Það eina sem ég hef fram að færa sem er á mörkum hins vitræna er að mér líkaði við formin í Jeanne Dielman. Almennt er myndavélinni stillt upp þannig að umgjörðin er öll hornrétt. Þetta er meira og minna kassalaga. Það magnar um hreyfingarleysi myndavélarinnar.
Óli gefur ★★★★★👍👍🖖 en er ekki á því að þetta sé besta mynd allra tíma.
¹ Vertigo gekk í gegnum tímabil þar sem erfitt var að sjá hana og eftir að hún varð aftur aðgengileg byrjuðu allir að slefa yfir henni. Hún er ekki á toppnum yfir mínar uppáhalds Hitchcock myndir.
