Ung frönsk kona af alsýrskum uppruna reynir að þrífast í samfélagi sínu þó hún eigi erfitt með að finna sig í tilætluðu kynhlutverki.
Litla systirin er ein af þessum myndum sem ég vel bara út frá jákvæðri einkunn á Letterboxd. Ég fór án þess að vita nokkuð. Hún greip mig alveg frá upphafi. Í lokaatriðinu nær einföld gjöf að segja svo margt.
Óli gefur ★★★★⯪ 👍👍
