Andkommúnískur innflytjandi reynir við ameríska drauminn og ætlast síðan til þess að litli vinur hans komi honum úr klípu.
Af einhverri ástæðu hef ég aldrei séð upprunalegu Scarface þannig að ég get ekki borið myndirnar saman. Aftur á móti mundi ég sterkt eftir upphafstexta þessarar útgáfu þó ég sé nokkuð viss um að ég hafi aldrei séð hana áður.
Samkvæmt umræddum upphafstexta Scarface voru um 25 þúsund glæpamenn í hópi 125 þúsund kúbanskra flóttamanna sem Castro leyfði að að fara til Bandaríkjanna. Þetta virðast vera gríðarlegar ýkjur sem skýrast væntanlega bæði af ummælum Fidel sjálfs og fordómum Bandaríkjamanna. Hins vegar var margt flóttafólkið hinsegið og sérstaklega trans.
Handritshöfundur Scarface átti sjálfur í löngu persónulegu sambandi við eina aðalpersónu myndarinnar, þ.e.a.s. kókaín, og fylgdi greinilega möntrunni „skrifaðu það sem þú þekkir“. Það er freistandi að kenna Oliver Stone um ruglið í upphafstextanum enda er hann frægur fyrir að vera meðtækilegur fyrir samsæriskenningum.
Scarface er mjög síns tíma að því leyti að einstaklega fáir Kúbverjar sjást í myndinni.¹ Ángel Salazar og Steven Bauer² eru stóru undantekningarnar. Sama gildir um persónur sem eiga að vera frá Kólumbíu.
Það er sumsé óhóflegt magn af brúnku notað í Scarface á leikara sem almennt eru taldir hvítir. Flestir þessir leikarar eru af ítölskum ættum, Al Pacino (Tony Örfés), Mary Elizabeth Mastrantonio, F. Murray Abraham³ og Robert Loggia falla í þann flokk. Sá síðastnefndi er sérstaklega vandræðalegur í hlutverki Lopez.⁴
Umfram allt er þetta bara kjánalegt og gerir mér erfitt fyrir að taka þessar persónur alvarlega. Síðan er þetta væntanlega stór hluti af ástæðunni fyrir því að spænskumælandi persónur Scarface tala nær eingöngu ensku sín á milli. Hvaða máli skiptir það? Til dæmis að persónur sem eiga erfitt með að tjá sig á ensku ættu að vera mun málfærari á spænsku. Það hefur áhrif á hvernig við upplifum þær.
Al Pacino og De Palma voru víst báðir á móti því að Michelle Pfeiffer yrði fengin til að leika konuna sem Tony fellur fyrir. Það skilst kannski ef við höfum í huga að stærsta mynd hennar fram að þessu var Grease 2.⁵ Scarface gerði hana auðvitað fræga.
Í fyrsta atriðinu þar sem er bandaríska innflytendaeftirlitið er að yfirheyra Tony heyrði ég mjög kunnuglega rödd en kannaðist ekki við leikarann þegar hann birtist. Svo tók ég eftir sá leikari átti ekki röddina sem var notuð fyrir hann. Ég giskaði að á bak við tjöldin hefði þetta verið Jack Warren en þetta var víst Charles Durning. Síðan talar Dennis Franz víst líka fyrir annan leikara í atriðinu.
Richard Belzer kemur fram í hlutverki grínista (sem hann var). Ég tók alls ekki eftir c. 13 ára gömlum Brett Ratner (sem leikstýrði Melania) svamlandi um í bakgrunni sundlaugaratriðis.
Saga Scarface er eldri en upprunalega myndin. Viðbæturnar eru Kúbverjar og kókaín vökvað með blóði og ofbeldi. Það gerir myndin í sjálfu sér ekki slæma en ég sé ekki snilldina.
Giorgio Moroder samdi, og flutti væntanlega, tónlistina í myndinni. Hann samdi líka flest lögin en orti hvorki textana né söng. Mér líkar almennt við Moroder en hérna fannst mér tónlistin oft vera aðeins of nákvæm endurspeglun þess sem var að gerast á tjaldinu. Það má fara fínt í hlutina
Scarface er allt í lagi glæpamynd. Ef lokaatriðið hefði verið aðeins betur útfært væri ég hrifnari. Auðvitað eru margir aðdáendur myndarinnar sem heillast aðallega af því sem mér fannst óþarft. Ef Tony hefði ekki fengið þessa línu væru morðingjar og fólk sem tilbiður ofbeldi ekki jafn hrifið af honum og myndinni.
Maltin gefur ★⯪☆☆ og heillaðist ekki af blóði, ofbeldi, sögu, persónum eða lengd myndarinnar.
Óli gefur ★★★☆☆🫴
¹ Sérstök leit að kúbverskum leikurum hefði mögulega orðið til þess að Andy Garcia fengi hlutverk. Í staðinn fékk De Palma Garcia til að leika ítalska löggu í The Untouchables.
² Bauer, sem lék aðalvin Tony Montoya, var víst giftur Melanie Griffith. Ætli hann hafi ekki örugglega kynnt konuna sína fyrir leikstjóranum Brian De Palma og beri þar með örlitla sök á því ˚hvernig feril hennar sökk eftir að hún lék í Bonfire of the Vanities?
³ Forfeður F. Murray Abraham í föðurætt voru hins vegar kristnir Sýrlendingar.
⁴ Við vitum ekki hvaðan Lopez á að hafa verið en brúnkan og nafnið gefa til kynna rómönsku Ameríku.
⁵ Ég man mjög óljóst eftir Grease 2 en hef í seinni tíð heyrt marga tala vel um hana. Mögulega er það bara af því hve illa upprunalega Grease hefur elst.
