Ungur lærdómsmaður á tímum Elísabetar I reynir að finna útrás fyrir sköpunarþörf sína og við fylgjumst með vanræktu fjölskyldu hans.
Ég bjóst einhvern veginn við Anne Hathaway en Jessie Buckley leikur hér Agnes(i) sem giftist William Shakespeare (Paul Mescal). Eiginkonan fær jákvæðari meðferð í Hamnet en oft áður þó ég sé ekki sannfærður um að það hefði verið henni að skapi.
Hamnet er ekki sögulega nákvæm mynd. Það hjálpar ekki heldur rosalega að þekkja þekkja söguna af Amlóða.
Lengst af er Hamnet voðalegt „meh“ en undir lokin er atriði sem réttlætir tilvist hennar. Ég get samt ekki sagt að myndinni hafi tekist að svara grundvallarspurningunni um tengsl Hamnet og Hamlet.
Óli gefur ★★★⯪☆👍
