Herz aus glas (1976) ★★★⯪☆👍

Missir ómissandi manns umturnar daglegu lífi í bæversku þorpi á átjándu öld.

Ég veit ekki. Werner Herzog á að hafa dáleitt leikara Herz aus glas í von um … eitthvað. Kannski tókst honum það. Allavega er þetta undarleg mynd. Svo er það líka að fólk virðist oft ekki átta sig á að leikstjórinn er viljandi fyndinn. Ég er samt ekki alveg viss um hvenær það er óvart en ég hló reglulega.

Glerblástursatriðin eru sérstaklega flott.

Óli gefur ★★★⯪☆👍 en á mjög óræðan hátt.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *