Um miðja síðustu öld lendir frekar pirrandi borðtennisspilari ýmsum í hremmingum sem eru oft honum sjálfum að kenna.
Hvernig er hægt að hafa söguhetju sem er ótrúlega fráhrindandi í tvo og hálfan klukkutíma án þess að áhorfendur séu farnir að hatast við hann og myndina sjálfa? Mögulega hjálpar að hafa Timothée Chalamet í hlutverkinu? Svo er mikilvægt að þó Marty sé óþolandi þá er oft traðkað á honum.
Fólk segir margt að Timothée Chalamet hafi tapað Óskarsverðlaununum sem besti leikari af því að hann vildi vinna. Hann virðist ekki skilja að fólk vill helst verðlauna þann leiksigur að þykjast ekki vilja vinna.
Tónlistarvalið í Marty Supreme er óvenjulegt en skemmtilegt.
Óli gefur ★★★★⯪👍👍
