Play Dirty (2025) ★★⯪☆☆🫳

Frægasti¹ þjófur í heimi þarf að takast á við sitt erfiðasta verkefni.

Wikipedia er með þennan þægilega lista yfir leikara sem hafa reynt við hlutverk ofurþjófsins Parker.

Lee Marvin (Point Blank)
Jim Brown (The Split)
Robert Duvall (The Outfit)
Peter Coyote (Slayground)
Mel Gibson (Payback)
Jason Statham (Parker)

Það sem ég hef heyrt frá aðdáendum bókaseríunnar er að enginn leikari eða kvikmynd hafi náð kjarna persónunnar Parker því í öllum tilfellum var hann fegraður á einhvern hátt.

Shane Black leikstýrir Play Dirty og skrifaði handritið. Mér sýnist hann hafa gengið langt í að gera aðalpersónuna eins andstyggilega og mögulegt er, fékk meira að segja Mark Wahlberg í hlutverkið.

Af öðrum leikurum má helst nefna Tony Shaloub, Dermot Mulroney, Keegan-Michael Key, LaKeith Stanfield og Rosa Salazar.

Málið er að það er næstum góð mynd falin inni í Play Dirty. Það er svo margt sem hefði verið hægt að hliðra til og gera betur. Aðallega kannski stytta. Kannski er málið samt að aðalpersónan er það ógeðfelld að ég verð bara næstum sjálfkrafa fráhverfur myndinni.

Óli gefur ★★⯪☆☆🫳

¹ Það er ákveðin þversögn í að vera bæði frægur og fær þjófur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *