There’s Something About Mary (1998) ★★★⯪☆👍

Maður einn á erfitt með að komast yfir fyrstu ástina og kemst að því ástinni fylgja ýmsar hættur.

Þar sem við stóðum fyrir utan bíósalinn komu foreldrar með tvær dætur sínar. Ég var svolítið hissa en aldurstakmarkið er víst bara sex ára þó flest lönd setji það hærra. Ég velti fyrir mér hvort foreldararnir hefðu séð There’s Something About Mary áður. Líklega var þetta áhugaverð reynsla fyrir fjölskylduna.

Farelly-bræðurnir slógu í gegn með Dumb and Dumber en Kingpin var álitin mislukkuð. Síðan kom There’s Something About Mary. Hún var hálfgerð sprengja þegar hún kom. Það að vera í troðfullum bíósal og bregðast við með öllum á sama tíma þegar, þið vitið, gerðist var magnað.

There’s Something About Mary hefur ekki enst sérstaklega vel. Núorðið finnst mér að fólk tali meira um Kingpin. Það eru mörg mjög fyndin atriði í myndinni. Þau eru bara eiginlega of fá til að standa undir heildinni. Það hefði örugglega mátt stytta hana frekar mikið.

Söguþráðurinn í There’s Something About Mary er þéttari en mætti halda. Við enduráhorf er hægt sjá hve þétt pússlin falla saman. Ekki að það skipti höfuðmáli.

Cameron Diaz fær ekki að gera sérstaklega mikið í myndinni. Hún er bara rosalega sæt og hefur sömu áhugamál og karlmenn sem þeim finnst ómótstæðilegt.

Ben Stiller er fínn. Christ Elliott er eins og hann er gjarnan. Matt Dillon er ekki eins og hann er vanalega. Keith David á frábært innslag.

Maltin gefur ★★☆☆ (sjálfum sér líkur)

Óli gefur ★★★⯪☆👍

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *