Hard Boiled (1992) ★★★★☆👍👍

Lögga í Hong Kong skýtur fyrst og skýtur svo aftur og aftur.

Það er skammarlegt að ég hafði ekki séð neinar myndir John Woo nema tvær af þeim bandarísku, sumsé Broken Arrow og Mission Imposssible 2. Það var ekki gott aðgengi að Hong Kong hasarmyndum á Akureyri.

Hard Boiled er almennt ótrúlega heimskuleg mynd. Það er ekki minnsta vit í neinu. Hasarinn er aftur á móti svo góður og fyndinn að mér varð alveg sama.

Chow Yun-fat og Tony Leung leika aðalhlutverkin en Philip Kwok er sérstaklega eftirminnilegur sem „Mad Dog“. John Woo leikur barþjón sem er fyrrverandi lögga og vinur aðalpersónunnar.

Ég þykist sjá smá áhrif frá Miami Vice á Hard Boiled. Hún minnti mig líka töluvert á þættina Hunter um samnefnda löggu sem endaði yfirleitt á að drepa glæpamennina í stað þess að handtaka þá. Þetta var svo yfirgengilegt að einn þátt snerist alveg sérstaklega um að Hunter leyfði einum óþokka að lifa.

Það hefði kannski mátt skera fimmtán mínútur af Hard Boiled.

Óli gefur ★★★★☆👍👍

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *