Þrátt fyrir erfið persónuleg mál gerist kona heimahjálp í dreifbýli þar sem írska er ráðandi tungumál (Gaeltacht).
Hey, ég lærði þjóðfræði á Írlandi og hef áhuga á írskri sögu og menningu. Gæti verið að ég heillist af hryllingsmynd sem byggir á öllu þessu? Ekki nema það sé vel gert og það er vel gert í Fréwaka (orðið þýðir víst rætur á írsku).
Það hjálpar örugglega að þekkja írska menningu til að skilja hvað er á seyði en ég efast um að það sé nauðsynlegt til að kunna að meta Fréwaka. Það er samt ágætt að rifja upp fyrir áhorfið hve þrúgandi áhrif kaþólsku kirkjunnar voru á Írland tuttugustu aldarinnar, sérstaklega fyrir konur.
Fréwaka er eftir Aislinn Clarke. Aðalhlutverkin eru í höndum Clare Monnelly (Moone Boy) og Bríd Ní Neachtain (Banshees of Inisherin).
Mig langar að segja meira en mér þætti betra að fólk leyfði myndina að koma sér á óvart.
Í Fréwaka sjást annars hefðbundnir Músarindilsdagsbúningar. Á annan í jólum var víst hefð að veiða smáfuglinn.¹ Það var bannað alla aðra daga en það var mjög táknrænt að veiða einn akkúrat þennan dag. Það er ekki alveg ljóst hvað þetta átti að tákna en þarf allt táknrænt að tákna eitthvað?
Ég man ekki eftir að hafa lifað mig jafn innilega inn í hryllingsmynd og Fréwaka. Andrúmsloftið var algjörlega yfirþyrmandi. Frábær.
Óli gefur ★★★★★👍👍.
¹ Músarindill er víst vísindalega séð Troglodytes troglodytes.
