Ég veit ekki hvort ég hef minnst á þetta áður en það voru mistök með pöntun sem ég fékk frá Amazon um daginn. Indiana Jones pakkinn innihélt tvö eintök af *Indiana Jones and the last Crusade* en ekkert af *Temple of Doom*, ég þurfti þar af leiðandi að senda þetta til baka.
Fyrir viku fékk ég tilkynningu um að ég hefði fengið sendingu sem biði eftir mér á Tollmiðstöð póstsins upp á Stórhöfða þó vanalega sé svona sent heim. Mig grunaði hvað vandamálið væri og fékk það staðfest núna áðan þegar ég fór að ná í þetta, mér var nefnilega sagt að það vantaði reikninginn. Ég benti að sjálfssöðu um leið á þá staðreynd að reikningurinn væri þarna og það væri bara stórt núll á honum.
Starfsmenn póstsins vildu bara ekki trúa því að þetta kostaði ekki neitt þó það hefði verið einfalt mál fyrir þá að lesa bréfið sem fylgdi til að átta sig á stöðunni en nei það þurfti að draga mig alla leið uppeftir. Héldu þeir að ég væri í einhverju samsæri við Amazon um að sleppa við toll á nokkrum dvd-diskum.
Þetta reddaðist þó þegar ég mætti og sagði frá þessu, nú get ég horft á þessar aukamínútur af *Temple of Doom* sem hafa verið klipptar úr flestum ef ekki öllum evrópskum útgáfum af myndinni.