Á Mogganum stendur að á milli 8-10 þúsund manns hafi skemmt sér í miðbænum fram eftir nóttu, ég efast um þá tölu. Það gætu hafa verið svona margir samankomnir en ég efast um að allir hafi skemmt sér. Nema að lögreglan sé farin að nota nýjar talningaraðferðir, gangi á fólk og spyrji það í hvernig stuði það sé og sleppi að telja með þá sem eru ekki að skemmta sér. Ég er viss um að einsog alltaf þegar fólk kemur saman drukkið þá hefur verið þarna fólk sem leið barasta ákaflega illa, vinir að rífast, gelgjur að gráta og svo framvegis. Margir hafa væntanlega skemmt sér en ekki allir.