Ég er að skoða stundaskránna mína núna og samkvæmt henni þá er ég í Inngangi að miðlun og Skjalastjórn á sama tíma, bæði á þriðjudögum og fimmtudögum. Þetta er ekki gott. Ég þyrfti að skipta út Inngangi að miðlun fyrir Heimspekileg forspjallsvísindi, ég verð að taka Skjalastjórn núna þar sem kennarinn verður í leyfi á næsta ári. Við þetta fækkar einingunum mínum á þessari önn úr 19 í 17 og kannski ætti ég bara að vera glaður með það.
En er ekki helvítis vesen að segja sig úr áföngum og skrá sig í nýja núna? Veit einhver hvernig þetta er?
Annars þá verð ég að segja að nýju stundatöflurnar í Félagsvísindadeild eru hræðilegar, ég veit varla hvenær ég á að mæta í tíma né hvenær þeir eru búnir. Hver ber ábyrgð á þessu? Kannski ég ræði þetta á deildarráðsfundi á morgun?! Höfuð munu fjúka! Eða kannski ekki.
Þegar ég var í háskólanum á sínum tíma þá skipti ég nú um aukagrein einhverntíman í október. Skráði mig úr öllum enskuáföngum sem ég var í og í stjórnmálafræðiáfanga í staðinn. Það var ekkert mál. (En það var líka ’93)
Það átti að fara að taka eitthvað harðar á þessu en það er víst í lagi svo lengi sem maður kemur þessu í gegn á réttum tíma.
Það er hundlétt að skrá sig í og úr … nema þeir hafi látið verða að hótunum um að gera þetta stífara.