Er ég svona gamall?

Um daginn var sex ára strákur að spjalla við mig, hann spurði mig hvort ég ætti mikið af tölvuleikjum í tölvunni minni, ég sagði að ég ætti ákaflega lítið af tölvuleikjum. Þá sagði krakkinn:

Ef þú værir pabbi minn þá myndi ég vilja að þú ættir mikið af tölvuleikjum

Ég var alveg gáttaður. Ef ég væri pabbi hans? Ég! Ég fór síðan að reikna í huganum og áttaði mig á því að aldurslega séð þá gæti ég auðveldlega átt svona gamlan krakka, mér brá.