Batman vísar á 17 ára strákur afhjúpar lygar í Fahrenheit 911. Í raun þá er þetta 17 ára stelpa sem skrifaði þetta og þar að auki er þetta ákaflega gölluð grein og hér er henni svarað nokkuð vel.
Eftir að hafa lesið þessa grein þá mótaði ég smá samsæriskenningu um hvers vegna þessi grein var birt. Ég held að þeim sem birtu greinina hafi þótt þægilegt að láta 17 ára stelpu ljúga fyrir sig vegna þess að ef Michael Moore vill fara í mál þá verður hann að fara í mál við stelpuna og ekki kæmi það vel út fyrir kallinn.