Það eru mjög skiptar skoðanir meðal Queenaðdáenda á væntanlegri hljómleikaferð. Hið augljósa er að það er ekki hægt að fylla skarðið sem Freddie skyldi eftir. Freddie er líka besti söngvari rokksögunnar, ég veit að þetta eru stór orð en ég held að þessi fullyrðing sé einfaldlega sönn.
En það er enginn að ætlast til þess að Paul Rodgers sé jafn góður söngvari og Freddie, það er ekki heldur neinn að ætlast til þess að Brian og Roger séu upp á sitt besta. Þetta verður ekki Queen á hápunkti ferils síns, allir vita þetta. Ástæðan fyrir því að ég er hrifinn af þessu framtaki er að ég sé Brian og Roger spila nýju lögin sín á 46664 tónleikunum og orkan þeirra var stórkostleg. Þeir eru ekki tilbúnir til að hætta.
Erfiðast er kannski að láta fólk skilja að Brian og Roger voru í raun alveg jafn mikilvægur hluti hljómsveitarinnar og Freddie. Freddie var hins vegar hinn fullkomni frontmaður, kíkið bara á Queenhluta Live Aid tónleikanna.
Undanfarið hef ég verið að hlusta mikið á plötuna Sheer Heart Attack, hún byrjar á upptöku frá tívolí og síðan kemur gítarinn hans Brian uppúr því, mig langar að heyra í þessum gítar á tónleikum.
Fyrir mig er þetta náttúrulega einstakt tækifæri, ég var 7 ára þegar Queen spilaði á sínum síðustu tónleikum með Freddie, mig langar að fá smá hugmynd um hvernig þetta var.
