Ég er satt best að segja einstaklega óspenntur fyrir því að Bobby Fischer sé að fá dvalarleyfi hérna, það skiptir mig engu máli. En þetta finnst mér hræðilegt. Hvað er að fólki? Finnst einhverjum þetta réttlætanlegt? Helvítis skíthælar. Fischer fær sérmeðferð fyrir forna frægð en maður sem á heima hérna, sem á fjölskyldu hérna, sem á líf hérna er hent úr landi og má ekki sækja um dvalarleyfi næstu þrjú árin. Ég er reiður.
