Það er áhugavert að sjá hvernig Röskvuliðar eru farnir í nauðvörn þessa daganna. Mér finnst þessi grein á Pólitík alveg frábær, bæði undirstrikar hún það sem við höfum sagt um tengsl við stjórnmálaflokk og síðan… Ef það væri ekki brot á höfundarrétti þá myndi ég dreifa greininni út um allt í fullri lengd.
Atli Bollason sem skipar þriðja sæti hjá Röskvu fjallar um einstaklingskosningar á sinni bloggsíðu en allur hans málflutningur hefur þegar verið hrakinn í kommentakerfinu hans. Fyndnast er samt að Atli vill að fólk taki afstöðu á grundvelli einstaklinga en þó með því skilyrði að þeir einstaklingar séu á lista Röskvu eða Vöku. Þarna sést best að það er sameiginlegur hagur Röskvu og Vöku að núverandi kerfi haldist í óbreyttri mynd, það er hannað fyrir þessar tvær fylkingar og það þjónar einungis þeim.
Tveggja fylkinga kerfið hefur verið reynt og það er augljóslega meingallað, það hamlar öllum þeim sem starfa innan þess.
Einstaklingskosningakerfi er raunhæfur kostur, miðað við það sem ég hef skoðað þá er kerfið sem við búum við algjörlega á skjön við það sem aðrar námsmannahreyfingar búa við.
Þegar þú kýst Háskólalistann þá ertu að kjósa breytingar.
