Jarþrúður á kjörstað

Eygló var skrifari í morgun í kjördeildinni í Odda og tók þar eftir að Jarþrúður var sífellt á ferðinni þarna, kom svona tíu sinnum á þeim fjóru klukkutímum sem Eygló var þarna. Minn skilningur var sá að við frambjóðendur ættum að halda okkur í fjarlægð frá kjördeildum og það hef ég sjálfur gert.

Þið munið annars eftir því að kjósa Háskólalistann, öll rök eru með því. Hin einfalda staðreynd er sú að Vaka borðar börn, Röskva lumar á gereyðingarvopnum og Alþýðulistinn fer yfir á rauðu.