Skrípaleikur

Það er frétt á Vísi um væntanlegt brúðkaup Karls og Kamillu (á maður ekki að íslenska nafnið hennar?):
>Elísabet Englandsdrottning ætlar ekki að mæta í brúðkaup Karls Bretaprins og Camillu Parker Bowles. Þetta konunglega brúðkaup virðist vera að breytast í einn allsherjarskrípaleik með tilheyrandi vandræðagangi fyrir hjónaleysin.

Nú sá ég konunglegt brúðkaup í fyrravor og það var velheppnað að flestra mati en það var augljóslega skrípaleikur, allt sem tengist þessum konungsfjölskyldum er skrípleikur. Brúðkaup Karls og Díönu var á sínum tíma velheppnaður skrípaleikur. Það er vel mögulegt að þetta brúðkaup Karls verði minni skrípaleikur en fyrra brúðkaupið hans.

Er þetta í raun ekki rómantískara brúðkaup heldur en hið fyrra? Fyrra brúðkaupið var einskonar hápunktur áralangrar leitar Kalla að hreinni mey af göfugum ættum sem yrði elskuð af fólkinu, í þetta sinni ætlar hann að giftast konu sem hann hefur elskað í áratugi þrátt fyrir að allar aðstæður væru gegn því. Hún er ekki sæt og hún er ekki hrein mey en er það í alvörunni eitthvað sem skiptir nokkru helvítis máli? Kannski er hún indæl.

2 thoughts on “Skrípaleikur”

  1. Aldrei þessu vant alveg sammála þér, Kamilla er eina manneskjan sem maður getur borið einhverja virðingu fyrir í þessari sápuóperu

Lokað er á athugasemdir.