Ég var að bæta við nýjum efnisflokk hér og ég kalla hann íbúðakaup.
Undanfarið höfum við Eygló verið að velta fyrir okkur íbúðum og erum komin á það stig að við erum að fara að skoða á morgun. Báðar íbúðirnar sem við ætlum að skoða eru í gömlum húsum en líta samt vel út. Nú er margt sem við þurfum að athuga og gott væri ef einhverjir vilja benda mér á hluti sem ber að varast hérna í athugasemdakerfinu.
Þeim sem vilja gera athugasemdir við málfar og stíl er bent á að sjóða egg.

Það gæti vel verið rétt, við erum líka ekki alveg ákveðin í hvenær þetta verður, gætum enst hér í svona ár í viðbót.
Ekki bíða Óli minn. Verðið er enn hækkandi og mun ekkert lækka neitt á næstunni. Ef það gerist þá verður sú lækkun ekki fyrr en eftir langan tíma. Á þessu ári er spáð 15-20% hækkun á fasteignamarkaði þannig að ég myndi hoppa á eitthvað mjög fljótt. Á hinn bóginn veit ég ekki hvernig þú myndir fjármagna þetta. Ef þú átt útborgun þá kaupa, ef ekki, þá safna.
Um að gera, ef nokkur möguleiki, að taka með sér smið eða annan iðnaðarmann vanan húsaveseni í skoðun (ekki kannski fyrstu skoðun, en amk áður en ákveðið að kaupa)
Við erum alsæl í okkar gamla húsi, þó við höfum þurft að leggja dren og laga ýmislegt, það var þó búið að gera helling áður en við keyptum (skipta um járn og glugga og taka vatnslagnirnar í gegn)
Það er viðhald á öllum húsum, líka þeim nýju.
Tek undir með Braga, ekki endilega bíða, en það er afleitt þegar verðið er svona hátt að taka mjög háa prósentu í lán. Ávísun á basl í x ár.
Kaupa þrjú einbýlishús á landsbygðinni,frekar en
eina holu í R-vík.
Áttu egg til að lána mér? Annars heyrist mér á öllu að þetta sé einmitt ekki tíminn til að kaupa íbúð enda allt verð uppí topp
Gæti haldið fyrirlestur um íbúðakaup en læt duga að segja að það er ýmislegur aukakostnaður sem fylgir því að fara í gamalt hús, s.s. eilíft viðhald og viðgerðir – er skólpið gamalt, er komið „drain“ kringum húsið, hvernig er hitakerfið… gamlir vanafastir nágrannar…