Voðalegt frat

Kennsluskráin er nú nær eingöngu á rafrænu formi. Frábært. Þetta hjálparkerfi er mjög flott, tilkynnir mér að ég eigi til dæmis eftir að taka þrjá aðferðafræðikúrsa þegar ég er í raun búinn að taka þá tvo sem ég á að taka. Síðan vantar bara allt inn á síðuna með þjóðfræðiaukagreininni, engin námskeið í boði?
Kerfið vill skrá mig í kúrsana Klínísk aðferð, Straumfræði og Orkuferli. Mér lýst svo ekki vel þetta en kannski ég neyðist til að taka Orkuferli ef ekkert býðst í þjóðfræðinni.

Ég er aðdáandi þess að tölvuvæða hlutina en ef ekki er hægt að gera þetta almennilega þá sé ég ekki tilganginn.