Kanntu ekki að keyra aulinn þinn?

Við Eygló vorum úti að rölta áðan og tókum eftir auglýsingu í nýju herferðinni með krakkanum sem hefur lélegar fyrirmyndir. Þarna stóð „Kanntu ekki að keyra aulinn þinn?“. Reyndar var það ekki textinn sjálfur sem vakti athygli mína heldur staðsetningin, nefnilega strætóskýli. Þarna fær fólk sem af einhverjum ástæðum velur að taka strætó háðsglósur frá dónalegum krakka. Mér þótti það fyndið. Ætli Strætó átti sig á að það er verið að svívirða viðskiptavini þeirra?